Fyrirkomulag sem „hljómar náttúrlega galið núna“
RÚV ·
Viðbótarfjármagnið sem á að renna til námsgagna er aðeins lítið brot af þeirri innviðaskuld sem ríkir í málaflokknum. Samkvæmt útreikningum sérfræðings hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir nokkrum árum þarf 5,5 milljarða til að vinda ofan af uppsöfnuðum skorti. Þetta kom fram í Síðdegisútvarpinu í gær. Þar voru Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, og Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, til viðtals um stöðu námsgagna á Íslandi. Þau telja tímabært að endurskoða núverandi kerfi námsgagnaútgáfu á Íslandi. Ríkiseinokun á útgáfu námsgagna til grunnskólastigsins hafi kannski þótt eðlileg fyrir tæpum hundrað árum en sé það ekki lengur í dag. Ríflega fimm milljarða króna þarf til að vinda ofan af uppsöfnuðum skorti námsgagna í íslenska skólakerfinu. Framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu segir Ísland glíma við kerfisvanda í málaflokknum og vill endurskoða ríkiseinokun á markaðnum. Skref í rétta átt Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í síðasta mánuði að ráðuneytið ætlaði að leggja 455 milljónir til viðbótar í námsgögn. Þetta var ein af aðgerðunum sem kynntar voru vegna árangurs íslenskra nemenda á PISA 2025, sem hefur aldrei mælst verri. Fjárveitingin er háð samþykki fjárlagafrumvarpsins 2027. Athygli vekur að sú upphæð er 145 milljónum lægri en viðbótarframlagið sem Inga hafði í sumar sagst ætla að veita til málaflokksins. Þá ætlar ráðherra að setja frumvarp um ný heildarlög um námsgögn á ís. Frumvarpið, sem var ætlað að bæta úr slakri stöðu námsgagna, hefur fjórum sinnum ratað á þingmálaskrá og tveir forverar Ingu í embætti hafa mælt fyrir því. Það náði þó aldrei í gegn og ekki er víst að það verði lagt aftur fram. „Áhugavert“ fyrirkomulag „Sérfræðingur hjá ráðuneytinu, þegar ég var að vinna í stýrihóp þar, var búinn að reikna saman að það væru eflaust svona 5,5 milljarðar sem að tæki til að snúa þessari innviðaskuld við,“ sagði Íris í Síðdegisútvarpinu í gær. Íris sagði auk þess liggja á huldu hvernig
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 5:34:58 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com