Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Bergur Ebbi leiðir lesendur gegnum frumskóg hugmyndanna

RÚV ·

Gréta Sigríður Einarsdóttir skrifar: Ef þér líður eins og mér er þjóðfélagsumræðan um gervigreindina aðeins farin að missa sjarmann. Gervigreindin getur bjargað heiminum eða tortímt honum, allt eftir hvaða grein þú ert að lesa þá stundina. Sjálfsagt er bæði rétt. Sama hversu mikið skemmtanagildi felst í umræðunni þá þarf víst að vanda til verka þegar við innleiðum nýja tækni í líf okkar og starf. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þarf að ræða hvernig við eigum að gera þetta. Og það gerir Bergur Ebbi í nýjustu bók sinni, Öld ímyndunaraflsins. Það vantar alltaf eitthvað þjált íslenskt orð yfir non-fiction, en þetta er einmitt það, bók sem er ekki alveg hægt að skilgreina öðruvísi en svo að hún er ekki skáldskapur. Þetta er ekki ævisaga en Bergur Ebbi fjallar þó um uppvöxt sinn og fjölskyldu. Þetta er heldur ekki beint tæknileg bók um hvernig þessar nýjungar virka. Sjálfur kallar Bergur bækurnar sínar leiðsögurit um nútímann. Það eru sjö ár síðan Bergur Ebbi gaf síðast út leiðsögurit fyrir nútímann eins og hann hefur kallað bækur sínar um tækni, samfélagsmiðla og nútímamanninn. Í Öld ímyndunaraflsins tekst hann á við viðbrögð mannsins við innreið gervigreindarinnar. Bergur Ebbi er menntaður í framtíðarfræðum og kannski er hægt að segja að bókin fjalli um hvernig það að hugsa um fortíðina getur hjálpað okkur í nútímanum að hugsa um framtíðina. Öld ímyndunaraflsins er þriðja bókin hans af þessum toga, því áður hefur hann gefið út Skjáskot og Stofuhita, sem fjalla báðar á sinn hátt um samband mannsins við tæknina á tímum samfélagsmiðla. Bergur hefur líka gefið út ljóðabækur auk skrifa fyrir svið, sjónvarp og kvikmyndir. Í Öld ímyndunaraflsins tekst Bergur Ebbi, eins og fyrr segir, á við gervigreindina. Hann veltir fyrir sér hvaða breytingar hún hefur í för með sér og hvaða breytingar hafa þegar átt sér stað. Hann pælir líka í því hvað gerir okkur mennsk en vélarnar ekki, hversu mörg vött þarf til að keyra ímyndunaraflið, hversu kúl kók var á tíunda áratugnum, sársaukan

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 8:00:59 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗