Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Veltir fyrir sér hvort það sé raunsætt að lögfesta leikskólastigið

RÚV ·

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir samstöðu um að brúa umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóla en veltir fyrir sér hvort hugmyndir um lögfestingu leikskólastigsins séu raunsæjar. Átta þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að festa í lög rétt barna til að fá leikskólavist að loknu fæðingarorlofi. Verulegur viðbótarkostnaður Almar segir ljóst að mikinn undirbúning þyrfti til auk þess sem leysa þurfi önnur verkefni sem sambandið vilji að njóti forgangs. „Það liggur fyrir skýrsla. Þar kemur strax í ljós að það er verulegur viðbótarkostnaður við að ná þessu markmiði og við gerum alveg skýlausa kröfu um að það verði rætt á ásættanlegan hátt á milli ríkis og sveitarfélaga áður en við förum að ákveða nokkuð í þessum efnum.“ Almar bendir á að þetta yrði bæði stórt og dýrt verkefni. Fjölga yrði starfsfólki og leikskólum og ljóst að heildarkostnaðurinn gæti hlaupið á tugum milljarða króna. „Það vex okkur svolítið í augum núna þegar við eigum mál sem þegar eru á borðinu gagnvart ríkinu sem eru mun umfangsmeiri og eru algjörlega óafgreidd í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Auðvitað erum við bara dauðhrædd við að fara að ræða þetta mál þegar samskipti um önnur mál ganga eins og þau ganga.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 9:58:34 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗