Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Engir Reykjavíkurleikar árið 2027

RÚV ·

Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) kom Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum (RIG) á koppinn árið 2008 sem alþjóðlegu fjölgreinamóti. Fyrstu árin var fyrst og fremst keppt í Laugardal en mótshaldið stækkaði ört með árunum. Tilgangur leikanna í upphafi var meðal annars að draga úr ferðakostnaði íslenskra íþróttamanna með því að fá sterka erlenda keppendur hingað til lands. Í sumum greinum hefur það gengið vel í gegnum árin og keppni í þeim verið afar sterk á meðan aðrar greinar hafa átt erfiðara með að laða góða erlenda keppendur til landsins. Því hefur í sumum tilvikum verið allur gangur á því hversu hátt risið hefur verið á styrkleika keppninnar. Kostnaðurinn of mikill „Varðandi konseptið og hvort það hafi liðið undir lok þá tel ég svo ekki vera. Auðvitað hefur margt breyst á þeim tæpu tuttugu árum sem leikarnir hafa farið fram en grunnhugmyndin um að hafa vettvang fyrir íþróttagreinar sem allajafna fá minni athygli, til að auka athyglina með sameiginlegum slagkrafti og hafa alþjóðlega keppni á Íslandi, er eitthvað sem við teljum að standi enn fyrir sínu,“ segir Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR. Ákvörðun um leikarnir verði ekki haldnir á næsta ári var tekin nýverið en í fundargerð ÍBR frá 22. september má sjá að leikarnir voru þá enn á dagskrá. „Leikarnir verða haldnir á einni helgi 23. og 24. jan. Ráðstefnan í vikunni. Sjónvarpsútsending hugsanlega. Tíu greinar hafa látið í ljós áhuga en nokkrar eiga eftir að svara,“ segir í fundargerðinni. Frekari niðurskurður í móthaldi til skoðunar ÍBR hefur ekki farið varhluta af verðbólgu og niðurskurði og því ákvað stjórnin á næsta fundi á eftir að aflýsa leikunum árið 2027. Eftirfarandi tilkynning var send á sérsambönd og mótshaldara: Stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í dag að halda ekki Reykjavíkurleika á næsta ári. Þetta er mjög erfið ákvörðun ef horft er til hlutverks leikanna sem vettvangs fyrir alþjóðlega keppni fyrir afreksfólk okkar á heimavelli. Leikarnir eru kostnaðarsamir og í ljósi þes

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 9:46:21 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗