Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
RÚV ·
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Leit hefst á morgun. Lúðvík Pétursson vann við að fylla í sprungu við einbýlishús við Vesturhóp 29 í Grindavík í janúar 2024 þegar hann féll niður í sprunguna. Hans var leitað við erfiðar aðstæður án árangurs. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti í dag að leit að líkamsleifum Lúðvíks hefjist á morgun. Kvíðablandin feginstilfinning yfir því að leit hefjist loks á ný „Það er náttúrulega mikill feginleiki hjá allri fjölskyldunni, að þetta sé loksins komið í gang. Um leið er líka einhver kvíði, bæði um hvort það finnist eitthvað en líka ef það finnst ekkert. Það eru blendnar tilfinningar þessa sólarhringana,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks. Til stendur að hefja leit á morgun að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Fjölskylda Lúðvíks fagnar leitinni en segir að henni fylgi einnig blendnar tilfinningar. Fjölskylda Lúðvíks hefur lengi óskað eftir að reynt verði að ná líki hans upp. „Um leið og við höfum lagt mikla áherslu á það að það sé farið varlega, það sé ekki verið að setja fólk í hættu – það viljum við alls ekki – þá finnst mér þetta nokkuð langur tími og í raun og veru í litlu samræmi við þann tíma sem menn gáfu sér þegar þeir voru að undirbúa verkið sem Lúlli var settur í,“ segir Elías. Vinnueftirlitið telur að slysið megi rekja meðal annars til þess að fullnægjandi áhættumat lá ekki fyrir. „Hefði aldrei þurft að gerast“ „Það voru teknar ákvarðanir sem að settu Lúlla í þessar aðstæður, það voru ekki teknar ákvarðanir sem hefðu getað komið í veg fyrir það, og niðurstaðan er sú að Lúlli dó, sem hefði aldrei þurft að gerast,“ segir Elías. Hann vonar að málið verði gert upp á heiðarlegan hátt og lærdómur dreginn af því. „Við viljum sjá að þetta verði skoðað almennilega, án allrar meðvirkni en ekki að fara í persónur heldur að skoða kerfið, hvernig það virkaði, og það verði vonand
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 8:36:40 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com