Ætla að sækja flothring af sjókví úr fjörunni við Patreksfjörð í næstu viku
RÚV ·
Arctic Fish ætlar að fjarlægja sjókví úr fjöru í Patreksfirði í næstu viku eftir rúman mánuð í fjöruborðinu. Reglulega berast tilkynningar til Landhelgisgæslunnar um kvíar á reki vegna siglingahættu. Flothringur á reki getur hvolft bátum Einar Helgason formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum segir flothringina stór og þung fyrirbæri sem sjáist illa í sjó og séu sérstaklega hættuleg smábátum þegar þau eru á reki. „Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring,“ segir Einar. Hefur legið í fjörunni í mánuð Um miðjan september rak flothring af sjókví á land í sunnanverðum Patreksfirði. Hann var ekki í notkun, á honum voru engin net og enginn fiskur hafði verið í kvínni. Hann losnaði vegna veðurs og rak upp í fjöru. Hringurinn sjálfur er nokkur tonn að þyngd og erfitt reyndist að ná honum burtu vegna veðurs. Björgunarsveitin á Patreksfirði reyndi að aðstoða við að draga kvína á flot aftur en það náðist ekki að setja spotta á hana vegna veðurs. Í viðtali við fréttastofu í vikunni sagði Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, að fyrirtækið hafi beðið eftir veðri til að gera aðra atlögu að því að ná hringnum úr fjörunni. Góðviðrisdagana síðan kvíin strandaði hafi þurft að nota til að sinna fiskinum í kvíunum. Sæta færis í næstu viku Eftir umfjöllun fréttastofu hafði Umhverfis- og orkustofnun, sem gefur út starfsleyfi fiskeldisfyrirtækja, samband við Arctic Fish, eigendur kvíarinnar. „Svörin voru að þau ætla að fara í næstu viku og ná í kvína og eru bara að bíða eftir veðurglugga til að komast,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, teymisstjóri í teymi eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun. „Ef að fyrirtækið gerir það ekki þá munum við fylgja því eftir með þvingunarúrræðum.“ Sigríður segir fyrirtæki bera ábyrgð á að fjarlægja rusl eftir sig utan atvinnusvæða. Ef stofnuninni berist tilkynning getur hún krafið eigendur um tímasetta úrbótaáætlun. Ef þær tímasetningar ganga ekki eftir getur stofnunin veitt fyrirtækinu
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 7:38:46 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com