Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum

RÚV ·

Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur vann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda undir yfirskriftinni Lestur er lýðheilsa: Könnun á viðhorfum starfsfólks bókasafna og sveitarfélaga til lestrarmenningar í sveitarfélögum landsins. Í Kastljósi var fjallað um skýrsluna og í framhaldi af því var inntak hennar gaumgæft í myndveri með safnstjóra Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og formanni Rithöfundasambands Íslands. Rauði þráðurinn í nýrri skýrslu sem Gerður Kristný Guðjónsdóttir vann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda er skortur á heildstæðri stefnu um bókakaup og bóklestur, sérstaklega á leikskólum. „Ég hringdi út um allt land í almenningsbókasöfnin, skólabókaverði og leikskólana og reyndi að komast að því hvað þau fá mikið til að kaupa íslenskar bækur.“ Gerður komst að raun um að ekki er hlaupið að því að fá upplýsingar um hversu miklu fjármagni er varið í bókakaup. „Þetta er ekkert skráð sérstaklega. Inni í þessu eru áskriftir að bókum og tímaritum, plastið utan um bækurnar, þannig að nei, ég komst ekki að því hvað miklu fé sveitarfélögin verja til bókakaupa.“ „Þá kemur í ljós að þetta er svona hipsumhaps. Ef ekki er verið að kaupa vinnuföt, þessa kraftgalla sem leikskólakennararnir eru í úti við, þá er hægt að nota peningana til að kaupa bækur, eða þegar fólk fer ekki á námskeið,“ segir Gerður. Einn viðmælenda Gerðar, sem er mjög áfram um að börnin hafi aðgang að góðu bókasafni, greindi frá því að þegar bókakosturinn væri fátæklegur og endurnýjunar væri þörf væri gripið til þess ráðs að kaupa bækur og fella kaupin undir útgjaldaliði á borð við „viðhald innanstokksmuna“. Það sé vanalega ekki nein föst upphæð eyrnamerkt bókakaupum. Rannveig Oddsdóttir, dósent í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri, er einn af viðmælendum Gerðar í skýrslunni. Hún hefur leitt rannsókn á notkun barnabóka í leikskólastarfi og kennir náms

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 3:45:13 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗