Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA

RÚV ·

Það skýtur skökku við að borgin vilji hagræða í rekstri bókasafna þegar íslenskir nemendur koma verst út í lesskilningi á meðal OECD-ríkjanna samkvæmt PISA-könnuninni. Þetta segir stjórn Rithöfundasambands Íslands í yfirlýsingu. Stjórnin gagnrýnir harðlega tillögu meirihluta menningarráðs Reykjavíkurborgar um að gerð verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur. „Niðurstöðurnar ættu að gefa tilefni til að stórefla bókasöfnin, fjölga útibúum, gera þau aðgengilegri skólum og leikskólum, fjölga viðburðum þeirra og laða enn fleiri notendur að þeim,“ segir í yfirlýsingunni. RSÍ bendir á að Reykjavíkurborg hafi verið bókmenntaborg UNESCO síðan 2011. Ein forsenda þess sé að borgin reki öflug almenningsbókasöfn. Stjórnin skorar á borgarstjóra að standa undir þeirri ábyrgð sem fylgi því að vera bókmenntaborg og efla starf Borgarbókasafnsins enn frekar. „Í Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, hefur Borgarbókasafnið sætt 1% hagræðingarkröfu í starfsmannahaldi á hverju ári undanfarin ár og enn meiri niðurskurður vofir yfir því núna,“ segir í yfirlýsingu RSÍ.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 6:06:52 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗