Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Átta drepnir og tíu særðust í fangauppreisn

RÚV ·

Að minnsta kosti átta voru drepnir og tíu eru særðir eftir fangauppreisn í tveimur fangelsum í Ekvador í gær. Uppreisnirnar voru í Cotopaxi-fangelsi og í Pichincha-fangelsi í Ekvador. Yfirvöld segja að búið sé að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð á fangauppreisninni og þeir verði fluttir í hámarksöryggisfangelsið El Encuentro. Fangelsið var byggt af ríkisstjórn forsetans Daniels Noboa fyrir harðsvíruðustu glæpamenn landsins. Yfir fimm hundruð fangar hafa verið drepnir í fangelsum í Ekvador síðan 2021. Sum fangelsi eru undir stjórn hersins en erfiðlega gengur að hafa stjórn á gengjum eiturlyfjasmyglara í fangelsunum, sem fyrirskipa morð og kúgun innan veggja fangelsanna. Ekvador var eitt sinn með öruggustu löndum Suður-Ameríku en tíðni ofbeldisglæpa í landinu hefur rokið upp undanfarin ár. Noboa, sem var kjörinn forseti árið 2023 og endurkjörinn í apríl á síðasta ári, hefur tekið harkalega stefnu gegn glæpagengjum, meðal annars með því að senda hermenn út á götur til að sinna eftirliti.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 3:34:48 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗