Fækka ferðum 1. desember
RÚV ·
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf., sem sér um rekstur Strætó, ætlar að fækka ferðum frá og með 1. desember. „Við erum sífellt að þróa leiðarkerfið áfram og finna leiðir til að bæta í þar sem er þörf á því og draga úr þar sem er ekki þörf á því,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. „Það var stóraukin þjónusta haustið 2025 og svo bættum við í aftur núna haustið 2026. En við erum að skoða núna smá skerðingu frá og með 1. desember á ákveðnum leiðum sem við teljum ekki vera þörf á þessari tíðni sem er í dag. Svo erum við líka að skoða núna sérstaklega jólin og svo áfram á næsta ári þá jól, páska og sumarfrí á þeim leiðum þar sem er mikið af skólafólki að draga úr þar. Það er ekki þörf á að halda úti sama þjónustustigi þegar skólafríin eru í gangi.“ Davíð vildi ekki staðfesta hvar ætti að skera niður en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur komið til tals að fækka ferðum á leið 3, á milli Granda og Mjóddar, leið 8, sem tengir saman Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, og leið 18 milli Grafarvogs og Miðborgar. „Það eru enn þá 5–6 vikur í þetta. Það er bara verið að skipuleggja þetta núna.“
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 12:30:21 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com