Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Nauðsynlegt að geta hlegið að listinni

RÚV ·

Myndlistarkennarinn og listamaðurinn Pétur Guðmundsson kenndi myndlist í grunnskóla og listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði. Eftir hann liggja býsnin öll af málverkum, teikningum, vísum og lágmyndum. Hann segir nauðsynlegt að hafa húmor og geta hlegið að listinni. „Það er gott að setjast niður og semja vísur og limrur með myndskreytingum.“ Pétur segist ekkert frekar velta hlutunum fyrir sér áður en hann byrjar að teikna, klippa, líma og mála. „Ég geri bara það sem mér dettur í hug í hvert sinn.“ Pétur er afkastamikill og sýningar hans eru orðnar ríflega sextíu talsins. „Stundum fæ ég of margar hugmyndir, þær skortir ekki. Það kemur alltaf eitthvað nýtt.“ Pétri hefur dottið í hug að skreyta húsgafl á heimili fjölskyldunnar. „Kannski kemur það einn daginn ef eiginkonan sættist á það.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 7:00:22 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗