Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Brotnar línur: Vekur upp vangaveltur um siðferði, hræsni og skautun

RÚV ·

Sölvi Halldórsson skrifar: Ljóðsagan Brotnar línur er fyrsta bók Védísar Evu Guðmundsdóttur, sem er menntaður lögfræðingur en leggur nú stund á meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Hún hefur áður birt verðlaunasmásögu í vefritinu Stelk en nú er komin út 70 blaðsíðna bók frá henni hjá Vöku Helgafelli. Í Brotnum línum mætum við ungri konu úr borginni sem hefur ráðið sig í sláturtíð, í heimabæ kærasta síns. Heyrum ljóðið Dagur tvö inni á aflokuðu salerni: hröð öndun ekki vera svona mikil skræfa malbikstútta aumingi og fyrst og fremst hræsnari. hættu að væla svona yfir þessu, pásan er búin, út með þig í vinnslusalinn. en af hverju er allt svona lifandi viðkomu sem er þó orðið dautt? vatni skvett í andlit. hurð opnast, skellur aftur. Ljóðskáldið Anne Carson sagði einu sinni, og síðan hafa margir haft það eftir henni, að ef prósi sé hús, þá sé ljóðið maður sem hafi kviknað í og hlaupi í gegnum húsið – og það nokkuð hratt. Mér varð hugsað til þessara orða þegar ég las Brotnar línur, því textinn er á köflum prósakenndur, og fær mann til að velta fyrir sér ólíkri textavirkni prósa og ljóða. Hvers við væntum af ólíkum textategundum og hvað það er sem gerir ljóð að ljóði. Er það spurning um loft á síðunum, samþjöppun merkingar, melódíu, rytma eða frásagnarleika textans? Það gengur auðvitað aldrei neitt að reyna að vesenast með svona skilgreiningu því um leið og við reynum að setja hana niður er ljóðið búið að kveikja í sér og hlaupið í burtu frá okkur. Að minnsta kosti þegar vel tekst til hjá ljóðinu. Það er þess vegna er spennandi að opna ljóðabók í fyrsta skipti, sér í lagi eftir nýjan höfund, því partur af lestrinum er að átta sig á leikreglunum sem skáldið hefur sett. Hvert skáldið vill fara með okkur og hvernig það fer að því. Sölvi Halldórsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár, rýnir í ljóðabókina Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur. Í bókinni mætir lesandi ungri konu úr borginni sem hefur ráðið sig í sláturtíð, í heimabæ kærasta síns. Það fyrsta sem sló mig

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 2:00:58 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗