Alltof margir á sumardekkjum
RÚV ·
Árekstri.is bárust tíu aðstoðarbeiðnir vegna árekstra milli klukkan átta og níu í morgun, þar af nokkra þriggja og fjögurra bíla árekstra þar sem bílar voru óökufærir á eftir. „Það sem kom okkur á óvart var hversu margir eru enn á sumardekkjum,“ segir Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Áreksturs.is. Næstum allir árekstrarnir urðu í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. „Það var töluvert um harða árekstra þar sem þurfti að draga bíla í burtu ónýta eftir þetta. Það voru þarna alltof margir á sumardekkjum.“ Einn áreksturinn sem Árekstur sinnti varð fyrir framan hjólbarðaverkstæði. „Þeir töluðu við okkur á dekkjaverkstæðinu og sögðu að þeir hefðu séð töluvert um að fólk hafi verið að afbóka tíma í dekkjaskipti þar sem það hefði ekki verið snjór í kortunum. En ég hvet ökumenn til að drífa í þessu. Það er enginn betri tími en núna og greinilega þörf fyrir að skipta úr sumardekkjum yfir á vetrardekk,“ segir Kristján.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 12:47:25 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com