Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Raye hreppti Mercury-verðlaunin

RÚV ·

Tónlistarkonan Raye hreppti hin virtu Mercury-tónlistarverðlaunin í gærkvöld fyrir nýjustu plötuna sína This Music May Contain Hope. Tólf aðrir voru tilnefndir til verðlaunanna, þar á meðal bítillinn Paul McCartney og söngkonan Olivia Dean. Verðlaunahátíðin var haldin í Newcastle á Englandi í gærkvöld. Raye, sem heitir fullu nafni Rachel Agatha Keen, kvaðst afar þakklát fyrir viðurkenninguna. Hún sagði að mikilvægt væri að halda í vonina þótt væmið kynni að vera. Raye hefur notið mikilla vinsælda síðastliðin ár. Árið 2024 vann hún til sex verðlauna á Brit-verðlaunahátíðinni og í ár hlaut hún sín fyrstu Grammy-verðlaun. Tólf tónlistarmenn voru tilnefndir til Mercury-verðlaunanna í ár en verðlaunin eru sérstök að því leytinu til að þar er enga flokka að finna heldur eru einungis veitt verðlaun fyrir bestu bresku plötuna. Verðlaununum svipar því til Booker-verðlaunanna í bókmenntum og Turner-verðlaunanna í listum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 12:12:03 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗