Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta

RÚV ·

Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi forseta landsins Delcy Rodriguez og ræða málin. Rodriguez tók við forsetaembættinu eftir að bandaríski herinn nam Nicolas Maduro á brott í janúar og flutti til Bandaríkjanna. Hann situr þar í gæsluvarðhaldi ásamt eiginkonu sinni og bíður réttarhalda. Rodriguez og ríkisstjórn hennar hafa lofað kosningum en ekki nefnt dagsetningu. Machado sneri aftur til heimalandsins í gær eftir tæpt ár í útlegð. Þúsundir fögnuðu henni í miðborg Caracas, höfuðborgar landsins. Machado fékk ekki að bjóða sig fram gegn Nicolás Maduro í forsetakosningunum 2024, þrátt fyrir að hafa sigrað í óháðu forvali forsetaframbjóðenda árið áður.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 5:00:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗