Nýr forseti ASÍ kosinn í dag
RÚV ·
47. þingi Alþýðusambands Íslands lýkur í dag. Þar verður nýr forseti kjörinn til tveggja ára. Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, gaf ekki kost á sér áfram. Forsetakjörið hefst klukkan 10. Það þykir líklegt að niðurstaða úr því verði komin fyrir hádegi. Arnaldur Grétarsson markaðs- og samfélagsmiðlasérfræðingur og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu eru í framboði til embættisins. Fleiri gætu þó bæst við enda er frestur til að bjóða sig fram til klukkan 10. Þá verða þrír varaforsetar kjörnir á þinginu. Tillaga um að fækka þeim var felld í gær. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafa báðar lýst því yfir opinberlega að þær sækist eftir embætti fyrsta varaforseta ASÍ.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 8:30:27 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com