Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
RÚV ·
Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa. Laun bæjarfulltrúa eiga að lækka um 50% á næsta ári en laun forseta bæjarstjórnar um 80%. Launalækkunin á að taka gildi í upphafi næsta árs og gilda út 2027. Þá var lögð fram viðbótartillaga um aukið aðhald í rekstri. Þetta á að skila 80–100 milljóna króna afkomubata. Skessuhorn greindi fyrst frá. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir þetta lið í því að rétta lið A-hlutans. „Þannig við verðum alltaf á grænu varðandi þessar kennitölur.“ Samstæðan í heild segir hann að sé þó í lagi. „Þessi aðgerð snýst ekki um að rífa í einhverja handbremsu. Það er ekkert neyðarástand. Við erum að halda áfram að hagræða og finna leiðir til að ná meiri ábata úr rekstri,“ segir Jakob Björgvin. Mánaðarlaun bæjarstjóra í Stykkishólmi eru um 2,5 milljónir á mánuði. Þrátt fyrir að vera ekki kjörinn fulltrúi lækka laun Jakobs Björgvins um meðaltal launalækkunar bæjarfulltrúa. Hann telur að það séu í kringum 100 þúsund krónur á mánuði. „Ég er samt ekki búinn að reikna það niður. [...] Ég tel rétt í ljósi minnar stöðu að taka þátt í þessu verkefni með bæjarfulltrúum.“
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 4:52:15 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com