Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Daiki Hashimoto varði titil sinn í fjölþraut

RÚV ·

Eftir undankeppnina um helgina voru einhverjir sem töldu að annar Japani, Ólympíumeistarinn Shinnosuke Oka, myndi sigra í kvöld. Það sló lítið á þær raddir að Hashimoto keppti í öllum greinunum sex í úrslitum liðakeppninnar í fyrrakvöld, þar sem Japan vann. Hashimoto blés hins vegar á allar úrtöluraddir og staðfesti enn og aftur að hann er besti fimleikakarl samtímans. Hann fékk 85,998 stig og var 1,8 stigum á undan Haonan Yang frá Kína. Joe Fraser frá Bretlandi varð þriðji en Oka átti í basli og varð áttundi. Nálgast þann sigursælasta Titillinn í kvöld er sá fjórði hjá Daiki Hashimoto. Hann vann fyrst í Liverpool árið 2022 og svo aftur 2023, 2025 og nú 2026. Hann varð líka Ólympíumeistari í fjölþraut á heimavelli 2021 en missti titilinn í hendur Oka í París 2024. Sigursælastur allra í fjölþraut á HM er Kohei Uchimura frá Japan. Hann vann sex heimsmeistaratitla í fjölþraut á árunum 2009 til 2015. HM í fimleikum heldur áfram á morgun þegar úrslit í fjölþraut kvenna eru á dagskránni. Keppni hefst klukkan 17:30 og verður sýnt beint frá keppninni á RÚV 2.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 7:53:05 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗