Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Segir hausverkinn hafa aukist við valið á EM hópnum

RÚV ·

„Við fengum mikið út úr þessu, æfðum vel, áttum góðar æfingar og spiluðum svo þessa tvo hörkuleiki. Þetta var mjög gott verkefni fyrir okkur,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari við RÚV um landsleikina sem íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilaði við Pólverja um helgina. Ísland vann fyrri leikinn við Pólverja 35-32 en tapaði þeim síðari 35-34 á laugardag. En hvað var það helst sem Arnar fékk út úr þessum leikjum? „Þetta pólska lið er með stóra, sterka og kraftmikla leikmenn og við fengum fullt af krefjandi verkefnum, sérstaklega varnarlega,“ sagði Arnar. „Við fengum meðal annars að glíma við sjö á sex hjá þeim. Það reyndi heilmikið á okkur og mun klárlega hjálpa okkur í undirbúningnum fyrir það sem koma skal á Evrópumótinu í desember. Við fengum mjög mikið út úr þessu. Við mættum kraftmiklu og sterku liði og þurftum að glíma við það varnarlega. Mér fannst það ganga heilt yfir bara vel og ég er ánægður með það.“ Nóg af svörum en þó ýmislegt að laga Ísland er í strembnum riðli með Ungverjum, Svartfellingum og Slóvenum á EM en fyrsti leikur Íslands á mótinu verður 3. desember og verður riðill Íslands spilaður í Oradea í Rúmeníu, steinsnar frá Ungverjalandi. Áður en að EM kemur spilar Ísland þó fyrst tvo vináttuleiki við Svía í Malmö og Halmstad í lok nóvember. „Það er auðvitað ýmislegt sem þarf að laga en við fengum líka fullt af verkefnum til að taka með okkur og vinna áfram með í hópnum eftir þessa leiki í Póllandi,“ sagði Arnar. Arnar náði að spila vel á íslenska hópnum í leikjunum í Póllandi og allir leikmenn komu eitthvað við sögu í leikjunum. „Já, þetta svaraði alveg fullt af spurningum. Heilt yfir er ég bara mjög ánægður með frammistöðu leikmannanna í þessu verkefni. Við viljum hafa samkeppni og hún er sannarlega til staðar. Ef eitthvað er þá er hausverkurinn við að velja hópinn fyrir EM meiri eftir þessa viku en hann var áður.“ Fer líklega með 18 leikmenn á EM Aðeins 16 leikmenn geta verið á leikskýrslu í hverjum leik á EM, en Arnar segist gera ráð fy

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 3:11:05 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗