Hundruð þúsunda taka þátt í réttritunaræfingu í úkraínsku
RÚV ·
Í dag, 27. október, er dagur úkraínskra bókmennta og tungumáls og þá taka hundruð þúsunda Úkraínumanna vítt og breytt um heiminn þátt í árlegri hefð: upplestri og réttritunaræfingu í úkraínsku. Kyiv Independent greinir frá því að úkraínska útvarpið standi fyrir viðburðinum en fyrsti útvarpsstíllinn var lesinn upp árið 2000. Á hverju ári er nýr og frumsaminn texti lesinn upp eftir einn höfund. Í ár er það Artur Dron, sem er rithöfundur og fyrrum hermaður, sem skrifar stílinn, Bréfið sem endar aldrei . Stíllinn verður lesinn upp af aðgerðasinnanum Dasha Astafieva og kennaranum Artur Proidakov. Upplesturinn hefst stundvíslega klukkan ellefu að úkraínskum tíma og er sendur út í útvarpi, sjónvarpi, á netinu og símaforritum. Vefsíðan Visit Ukraine segir að einnig sé hægt að taka þátt á ýmsum stöðum líkt og á kaffihúsum og í bókabúðum víða um Úkraínu. Og meira að segja lestarfarþegar geta tekið þátt. Blöðum og pennum verður dreift á þremur lestarleiðum sem verða á ferð þegar stíllinn er lesinn upp. Þeir sem þess óska geta svo sent stílinn inn, látið yfirfara hann og fengið einkunn. Tungumálið og sjálfsmynd þjóðar Yuliia Sheludko, framleiðslustjóri hjá úkraínska útvarpinu, segir að upplesturinn sé orðinn eins konar akkeri Úkraínumanna á stríðstímum. Hún segir Rússa hafa reynt að bæla úkraínsku í mörg ár og því sé mikilvægt að virða tungumálið og vernda. Bæði á tímum rússneska keisaraveldisins og á Sovéttímanum var rússneska gerð æðri úkraínsku og ýmsar takmarkanir og hömlur voru setta á útgáfu og menntun á úkraínsku. Úkraínskir menntamenn, rithöfundar og fólk í menningargeiranum var ofsótt, fangelsað og jafnvel myrt vegna afstöðu sinnar til tungumálsins. Eftir EuroMaidan-byltinguna 2014 fóru viðhorf að breytast til úkraínsku sem síðar hefur fengið enn meiri athygli eftir innrás Rússa árið 2022. Fyrir marga Úkraínumenn hefur úkraínskan orðið ein áhrifamesta leiðin til að tjá þjóðarvitund sína. Fyrir áhugasöm sem vilja spreyta sig á réttritun í úkraínsku er hægt að finna teng
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/27/2026, 4:37:23 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com