Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
RÚV ·
Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál. Tígrisdýr í dýragarði í Nýju-Delí á Indlandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.EPA / RAJAT GUPTA Breska ríkisútvarpið hefur það eftir vitnisburði réttarmeinafræðings að maðurinn, hinn 24 ára gamli William Chapman, hafi verið greindur með geðklofa og vitað sé að hann hafi oftar en einu sinni farið í geðrof. Fjölskylda Chapmans hafði ítrekað viðrað áhyggjur sínar af ástandi hans við heilbrigðisþjónustu í heimabæ þeirra, Doncaster, en hann var metinn í nógu góðu jafnvægi til að þurfa ekki á sérstakri umönnun að halda.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 5:23:57 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com