Vilja nýta flothringinn í Patreksfirði
RÚV ·
Flothringurinn sem rak á land í Patreksfirði í september er kominn með varanlegt heimili ef marka má yfirlýsingu Arctic Fish á Facebook í dag. Eins og RÚV greindi frá í morgun reyndi fyrirtækið að draga hringinn á flot í gær, en hann hafði verið strand frá því um miðjan september. Það gekk ekki betur en svo að hringurinn slapp frá þeim, rak um tvo kílómetra í burtu og strandaði á nýjan leik. Eigendur fjörunnar þar sem hringinn rak voru himinlifandi með þennan hvalreka. Svo segir í tilkynningu Arctic Fish á Facebook: „Landeigendur þar sem að kvíin okkar fræga er niðurkomin hafa haft samband við okkur og óskað eftir að fá að eiga kvína og taka hana upp á land og nýta hana eftir atvikum í framkvæmdir. Það er að okkar mati fín lausn enda var hún á leið í úreldingu þegar hún losnaði af bólinu.“ Vinna er hafin við að festa flothringinn þar sem hann er niðurkominn svo hann fari ekki á frekara flakk og ætla nýir eigendur að taka hann í sundur og nota efnið í framkvæmdir.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 6:20:56 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com