Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum

RÚV ·

Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver á Íslandi um 3,7% og gera má ráð fyrir að það hlutfall aukist á næstu árum. „Við sem höfum verið lengi í raforkusölu, við finnum fyrir talsverðum breytingum,“ segir Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun. Eftirspurn eftir raforku sé fyrst og fremst úr gagnaversiðnaði sem gervigreindarbyltingin knýi áfram mikla eftirspurn. Norðurlöndin finni líka fyrir þessu en þar hafi átt sér mikil stað mikil uppbygging í gagnaversiðnaði. Ísland sé nú komið á kortið en fyrir aðeins nokkrum árum hafi áhuginn verið mun minni. Samkvæmt fyrrnefndri greiningu notuðu gagnaver um 300 gígavattsstundir á fyrri helmingi ársins sem samsvarar um 70 megavatta virkjun. Og þau vilja meira. 350 MW bætast við á næstu fimm árum En er orkan til? Já, að minnsta kosti fljótlega, því eins og Tinna bendir á stendur Landsvirkjun í miklum framkvæmdum, raunar einhverjum þeim mestu í sögu fyrirtækisins. Um er að ræða fjögur verkefni. Í fyrsta lagi Vaðölduver , fyrsti vindorkugarður landsins. Í öðru lagi sé verið að bæta við toppvél við virkjunina á Þeistareykjum . Í þriðja lagi sé unnið að Hvammsvirkjun og í fjórða lagi að stækkun Sigöldustöðvar . Verið sé að bæta afli við kerfið sem sé nauðsynlegt vegna orkuskiptanna. Þegar öllum þessum verkefnum verður að fullu lokið árið 2031 hafa 350 megavött bæst við uppsett afl virkjana Landsvirkjunar. Til samanburðar er uppsett afl Kárahnúkavirkjunar 690 megavött og samsvarar þetta að framleiðslugeta Landsvirkjunar aukist um 10 prósent. Tinna segir að uppbygging gagnavera sé tækifæri, ekki aðeins fyrir Landsvirkjun heldur líka fyrir Ísland. Nýr kafli sé að hefjast í iðnsögu Íslands, líkt og hún fjallaði um í grein sem birtist á Vísi í dag . Uppbyggingin haldist þó í hendur við aukna orkuöflun og hversu mikið sé hægt að bæta við flutningskerfið. Aðspurð segir Tinna að ekki hafi ve

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 6:50:43 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗