Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Undir sömu stjörnu: Ný Þjóðarópera sýnir hvað í henni býr

RÚV ·

Trausti Ólafsson skrifar: Mikið var um dýrðir í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á sunnudaginn þegar Íslensk þjóðarópera bauð þangað gestum til þess að fagna því með glæsilegri óperudagskrá að þessi nýja listastofnun hefur hafið starfsemi. Veðrið var svo slæmt fyrir sunnan þennan dag að felld voru niður flug og Halla Tómasdóttir forseti komst ekki norður til þess að fagna með okkur hinum. En í opnunarávarpi sínu flutti Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, kveðju frá forsetanum og falleg orð um mikilvægi menningar og lista. Að því búnu hélt óperustjórinn, Finnur Bjarnason, svo innihaldsríka og hjartnæma ræðu að við lá að maður færi að skæla mitt í allri gleðinni. Eftir ræðu Finns spilaði Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Richards Schwennicke, tónlistarstjóra Þjóðaróperunnar, forleikinn að óperu Monteverdi um Orfeus. Á meðan hljómsveitin lék þetta fjögur hundruð ára gamla verk gengu félagar úr Kammerkór Akureyrar og Kirkjukór Akureyrarkirkju á svið. Kórfólkið var klætt búningum af ýmsu tagi og átti sá klæðnaður að vísa til þverskurðar af íslenskri þjóð. Leikhúsgagnrýnandi Víðsjár gleymdi stund og stað í einu af söngatriðunum í Undir sömu stjörnu sem er opnunarviðburður nýrrar Þjóðaróperu. Hún hafi alla burði til að skapa kraftmiklar óperusýningar í framtíðinni þar sem andagift og kunnátta ráða för. Þarna voru nokkrar konur á upphlut sem var fallegt en passaði kannski ekki alveg fyrir stúlkurnar í sígarettuverksmiðjunni sem tóku undir með Hildigunni Einarsdóttur þegar hún söng Habanera-aríu Carmenar úr óperunni frægu eftir Bizet. Þetta stílbrot í búningum var skondið fremur en skrýtið og svo vel tókst til að svarthærða konan í hópi kórkvenna fremst á sviðinu stal svolítið senunni þegar hún blakaði hvíta blævængnum sínum. Með þeirri þokkafullu hreyfingu gerði hún betur en að draga athyglina frá íslensku kvenbúningunum því að það var auðvelt að ímynda sér að þessi akureyska kórkona væri af Rómarfólki komin og sígarettustelpa síðan

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 8:00:14 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗