Börn sem létust í skotárás í Bandaríkjunum voru 5–11 ára
RÚV ·
Þrjú börn og kennari eru látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon í Bandaríkjunum í gær. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að árásarmaðurinn hafi verið 16 ára piltur en nafns hans hefur ekki verið getið. Hann braut sér leið inn í Silver Rail-grunnskólann í bænum Bend með því að skjóta á læstar dyr. Börnin þrjú sem létust voru fimm, átta og ellefu ára gömul. Annað sjö ára barn og 54 ára kennari voru flutt á spítala og er ástand þeirra sagt alvarlegt. Um 450 börn sækja Silver Rail-skólann. Skotinn til bana af almennum borgara Lögregla fékk tilkynningu um skotárásina klukkan 13:59 að staðartíma, eða klukkan 19:59 að íslenskum tíma. Tilkynningin barst frá sjónarvotti sem sagði að óþekktur maður hefði skotið á bíl sinn. Árásarmaðurinn var að endingu skotinn til bana af almennum borgara sem elti hann inn í skólabygginguna, hefur BBC eftir Mike Krantz, lögreglustjóra í Bend. Þremur mínútum síðar var lögregla komin á vettvang. Krantz segir að ekki sé enn þá komið á hreint hvort árásarmaðurinn hafi tengst skólanum með einhverjum hætti. Skólum í Bend var lokað eftir árásina.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 6:30:46 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com