Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum

RÚV ·

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um stafræna þjónustu. ESB sektaði Temu í maí um 200 milljarða evra fyrir að fyrir að leyfa sölu á ólöglegum vörum, eins og hættulegum barnaleikföngum. Á meðal þess sem Temu ætlar að gera er að rannsaka hvernig meðmælakerfi vefverslunarinnar stuðla að útbreiðslu á ólöglegum vörum. Framkvæmdastjórn ESB, sem fer með eftirlit með stafrænum reglum sambandsins, segir í yfirlýsingu að áætlunin feli í sér fimm aðgerðir til að bæta úr brotunum. Temu hefur nú fjóra mánuði til að gera bráðabirgðaáhættumat. Í yfirlýsingu frá Temu kemur fram að fyrirtækið meti mikils uppbyggileg samskipti við framkvæmdastjórnina. Aðgerðaáætlunin beri vott um skuldbindingu Temu til að fjárfesta í kröftugum innviðum til að tryggja öruggt og áreiðanlegt verslanaumhverfi fyrir alla evrópska notendur.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 3:46:19 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗