Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Einn nýliði í æfingahóp fyrir forkeppnina

RÚV ·

Ísland mætir Írlandi, Sviss og Aserbaísjan í nóvember í forkeppni Evrópumóts kvenna í körfubolta 2029. Liðin mætast aftur í febrúar og efsta lið riðilsins kemst áfram í aðra umferð forkeppninnar. Þar er sæti í sjálfri undankeppni Evrópumótsins í boði. Landsliðsþjálfarinn Pekka Salminen hefur valið 15 leikmenn sem munu æfa í aðdraganda leikjanna. Einungis 12 leikmenn eru í hóp í leikjum svo þrír munu detta út áður en liðið heldur út til Dublin þar sem fyrsti leikurinn verður gegn Írum 11. nóvember. Liðið kemur svo aftur heim og spilar hér á landi gegn Sviss 14. nóvember og Aserbaísjan 17. nóvember. Darina Andriivna Khomenska, leikmaður Aþenu, er eini nýliðinn í hópnum að þessu sinni. Danielle Rodriguez missir af leikjunum vegna meiðsla sem hún hlaut nýverið í leik með Njarðvík. Leikir Íslands verða sýndir beint á sjónvarpsstöðvum RÚV: Miðvikudagurinn 11. nóvember - 18:50 - Írland-Ísland [RÚV 2] Laugardagurinn 14. nóvember - 15:45 - Ísland-Sviss [RÚV] Þriðjudagurinn 17. nómember - 19:15 - Ísland-Aserbaísjan [RÚV 2]

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 10:20:02 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗