Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Óttast að leigubremsa hækki leiguverð þegar upp er staðið

RÚV ·

Seðlabanki Íslands geldur varhug við frumvarpi Ragnars Þórs Ingólfssonar um leigubremsu. Hann telur að áhrifin gætu orðið öfug, það er að framboð á leiguhúsnæði minnki og biðlistar lengist. Samkvæmt frumvarpi Ragnars Þórs má einungis hækka húsaleigu einu sinni á ári og má hækkunin ekki nema meira en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs. Er markmiðið meðal annars að koma í veg fyrir mánaðarlegar hækkanir húsaleigu þar sem þær valdi meiri verðbólgu en árlegar hækkanir. Seðlabankinn er ósammála þessu samkvæmt umsögn bankans sem birt hefur verið á vef Alþingis. Munurinn sé einungis sá að verði leigubremsa að veruleika sé líklegt að leigusamningar hækki á tilteknum tíma, svo sem um áramót eða á haustin. Áhrifin kæmu því líklega fram í árstíðarsveiflum verðbólgu en hefðu engin áhrif á verðbólgu til lengri tíma. Áhyggjur Seðlabankans snúa einnig að því að með leigubremsu verði klippt á samhengi leiguverðs við húsnæðisverð. Áhrifin kæmu hvað skýrast fram þegar húsnæðisverð hækkar meira en verðlag. Þegar slíkar aðstæður skapast verður ekki lengur hagkvæmt að leigja út íbúðir. „Framboð leiguhúsnæðis verður þá minna en ella sem aftur skapar þrýsting til hækkunar leiguverðs til lengri tíma litið. Til lengri tíma gætu því áhrifin orðið þau að minna framboð verði af leiguhúsnæði, biðlistar eftir leiguhúsnæði lengjast og gæði leiguhúsnæðis versnar. Áhrifin myndu þá ganga gegn markmiðum frumvarpsins,“ segir í umsögninni. Þá kunni hegðun leigusala að breytast. Þeir muni í auknum mæli kjósa styttri leigusamninga til að bregðast við takmörkunum á verðbreytingum á leigutíma. Það gangi einnig gegn markmiði frumvarpsins um aukið húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika. Þá undrast Seðlabankinn að frumvarpið taki einnig til atvinnuhúsnæðis enda hafi leiga á atvinnuhúsnæði ekki bein áhrif á mælingu verðbólgu. Óhagnaðardrifin leigufélög uggandi Óhagnaðardrifin leigufélög hafa sömuleiðis áhyggjur af áhrifum frumvarpsins líkt og lesa má út úr umsögn leigufélagsins Brynju og sameiginlegri umsögn Fél

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 6:17:11 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗