Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi

RÚV ·

Ræstingafyrirtækið iClean gaf út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk sitt eftir vinnustaðaeftirlit Eflingar í grunnskólum Mosfellsbæjar í haust. Stéttarfélagið hafði tilkynnt sveitarfélaginu um brot á lögum um vinnustaðaskírteini. „Við eftirlitið kom jafnframt í ljós að starfsmaður iClean hafði fengið maka sinn, sem er ekki starfsmaður fyrirtækisins, til að sinna störfum í sinn stað án vitundar eða leyfis stjórnenda. Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið segist hafa brugðist við atvikinu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur gagnrýnt Mosfellsbæ, sem útvistar ræstingum í stofnunum bæjarins til iClean, harðlega. Stéttarfélagið krafðist þess að fá afhent gögn til að fylgjast með því að farið væri að lögum og kjarasamningum við útvistun þrifa. Mosfellsbær fór í framhaldinu fram á að iClean afhenti Eflingu gögn. Efling fór í vinnustaðaeftirlit í þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í haust. Þar voru sex starfsmenn án vinnustaðaskírteinis og í ljós kom að einn starfsmaður var ekki í ráðningarsambandi við iClean. Þrátt fyrir það var hann með aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu. „Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atvikinu. Í svari sveitarfélagsins kemur fram að það telji fyrirtækið hafa tekið á atvikinu af festu,“ segir í yfirlýsingu iClean. Þá segir að makinn sé með hreint sakavottorð, líkt og allt starfsfólk fyrirtækisins. IClean kveðst hafa afhent Mosfellsbæ gögn um launakjör starfsfólks og skipulag ræstinga í stofnunum sveitarfélagsins. „Sveitarfélagið hefur móttekið gögnin og telur þau í samræmi við kröfu sveitarfélagsins um afhendingu á gögnum. iClean hefur jafnframt afhent Eflingu þessi sömu gögn.“ Í yfirlýsingunni segir að fyrirtækinu sé annt um það að réttindi starfsfólks séu virt. „Með framlagningu gagna og skýringum hefur verið leitast við að sýna hvernig staðið er að þessum málum hjá fyrirtækinu.“ IClean tók við ræstingum í byg

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 6:10:04 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗