Ætlar ekki að eiga í orðaskiptum við Jón um óheilbrigðar aðstæður
RÚV ·
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist hlusta á gagnrýni Jóns Gnarr á forystu flokksins, en ætlar ekki að eiga í orðaskiptum við hann um það sem hann segir óheilbrigðar aðstæður. Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í gær en styður ríkisstjórnina. „Það að vera í forystu á flokki er í fyrsta lagi ekki sjálfgefið og við þurfum alltaf að hugsa ýmislegt þegar við erum í forystu á flokki. Ég heyri hvað Jón segir og auðvitað bara mun ég taka það áfram innan flokksins. En um leið þá er ég líka mjög þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef fengið í gegnum tíðina með ítrekuðum endurkjörum,“ segir Þorgerður Katrín um gagnrýni Jóns á forystu flokksins. Spurð sérstaklega út í ummæli hans um óheilbrigðar aðstæður segir Þorgerður: „Ég ætla ekki að standa í orðaskiptum við Jón. Ég bara ber of mikla virðingu fyrir honum til þess. Mér þykir mjög vænt um hann. Mér hefur þótt gott að vinna með honum. Það er mín upplifun.“ Hægt er að hlusta á viðtal Ölmu Ómarsdóttur fréttamanns við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í heild í spilaranum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist ekki ætla að eiga í orðaskiptum við Jón Gnarr um aðstæður innan þingflokks Viðreisnar sem hann sagði sig úr í gær.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 1:01:21 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com