Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Nýdönsk stal bíl fyrir mistök

RÚV ·

Hljómsveitin Nýdönsk lenti í því óheppilega atviki að taka bíl í misgripum á Egilsstaðaflugvelli fyrr í mánuðinum. Sveitin var komin austur til að halda tónleika á Breiðdalsvík og taka upp lög. Fyrir algjöra óheppni hafði ólæstum bíl, sem passaði nákvæmlega við lýsinguna á þeim sem hljómsveitin átti að fá til afnota, verið lagt beint fyrir utan flugstöðina þegar þrír úr sveitinni gengu út. Hljóðfærin voru sett um borð og sveitin ók af stað. Nýdönsk var komin alla leið á Stöðvarfjörð þegar síminn hringir og maður hinum megin á línunni upplýsir þá um að líklega séu þeir á rangri blárri Kiu. Austurfrétt vakti athygli á þessu skondna máli en Jón Ólafsson, hljómborðsleikari sveitarinnar og ökumaður stolnu bifreiðarinnar, lýsti atburðarásinni í Síðdegisútvarpinu í gær. Maður stökk inn í flugstöðina á Egilsstöðum og skildi bílinn sinn eftir ólæstan fyrir utan. Þegar út var komið greip hann í tómt. Hver hafði eiginlega tekið bílinn hans? Svarið reyndist vera Nýdönsk.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 1:39:48 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗