Putellas og Kane valin best
RÚV ·
Þetta er í 70. skipti sem tímaritið France Football stendur að valinu á besta fótboltafólki heims. Í ár fór hátíðin fram í Lundúnum og er það í fyrsta sinn sem hún fer ekki fram í Frakklandi. Fjölmörg verðlaun eru veitt á hátíðinni en það er valið á leikmönnum ársins sem jafnan vekur mesta athygli. Harry Kane varð hlutskarpastur í karlaflokki. Hann skoraði 73 mörk á síðustu leiktíð fyrir FC Bayern í Þýskalandi og England. Hann fór svo fyrir enska liðinu sem vann brons á HM. Þetta er í fyrsta sinn sem hann vinnur þennan eftirsótta titil og er hann fyrsti Englendingurinn til að vinna í karlaflokki í 25 ár. Síðastur var Michael Owen árið 2001. Alexia Putellas vann í kvennaflokki. Hún var fyrirliði Barcelona sem vann allar fjórar keppnirnar sem liðið tók þátt í og var valin leikmaður ársins í Meistaradeildinni. Þetta er í þriðja sinn sem Putellas vinnur þessi verðlaun og er hún sigursælust í sögunni ásamt Aitana Bonmati, einnig frá Spáni. Spánverjar í sérflokki Spænsk ungmenni voru sigursæl í vali ungra leikmanna ársins. Þau féllu í skaut Lamine Yamal og Vicky Lopez, bæði á mála hjá Barcelona. Unai Simon og Cata Coll voru valin markverðir ársins. Bæði spila fyrir Spán. Þjálfarar ársins voru báðir spænskir; Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, varð hlutskarpastur í karlaflokki og Pere Romeu, þjálfari Barcelona, í kvennaflokki. Sóknarmenn ársins komu hins vegar hvorugt frá Spáni. Harry Kane vann í karlaflokki og Charlyn Corral frá Mexíkó í kvennaflokki.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 10:56:06 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com