Ræða undirbúning fyrir erfiðan vetur í Úkraínu
RÚV ·
Undirbúningur í Úkraínu fyrir það sem lítur út fyrir að vera erfiður vetur, er ofarlega á dagskrá leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í dag. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu kom á fund leiðtoganna nú á áttunda tímanum og ræddi stuttlega við fjölmiðla á undan. Zelensky segir engin merki um friðarvilja Rússa og þess vegna þurfi að undirbúa sig fyrir veturinn, segir hann; ekki aðeins hvað varðar orkumál, heldur einnig loftvarnir og fjárhagslegan stuðning. Samskipti stjórnvalda í Kyiv og Washington verða að líkindum einnig rædd á leiðtogafundinum í Brussel, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt árásir Úkraínumanna á olíuhreinsistöðvar í Rússlandi, í kjölfar samnings sem Trump gerði um síðustu helgi við Pútín Rússlandsforseta um aukið framboð á olíu og dísel.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 8:25:49 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com