Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik“

RÚV ·

Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik og maður skilur ekkert leikinn lengur, segir fulltrúi Ungheilla, ungmennaráðs Barnaheilla, um fyrirhugaðar breytingar menntamálaráðherra á námsmatskvarða í 10. bekk grunnskóla. Hún gagnrýnir menntamálaráðherra fyrir samráðsleysi. Hugmyndin góð en tímaramminn of knappur Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í aðalnámsskrá 2011 og innleiddar að fullu 2015. Breytingarnar voru settar í samráðsgátt stjórnvalda og umsagnarfrestur rann út í gær. Hundrað og sextán umsagnir bárust frá skólastjórnendum, kennurum, foreldrum og hagsmunasamtökum – þar á meðal Ungheillum, ungmennaráði Barnaheilla. „Mér finnst hugmyndin að breytingunni mjög góð. Talnaeinkunnir geta verið skýrari en bókstafir til að sjá hvernig nemendum gengur. En á sama tíma var þessu breytt of hratt og nemendur og kennarar fengu ekki eins mikið af upplýsingum um þetta og þeir hefðu þurft til að útskýra þetta fyrir okkur,“ segir Ronja Jakobsdóttir Regal, fulltrúi Ungheilla. „Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik og maður skilur ekkert leikinn lengur.“ „Mjög mikilvægt að talað sé við okkur“ Ronja er í 10. bekk og útskrifast næsta vor. Bæði hún og vinir hennar hafa miklar áhyggjur af fyrirkomulaginu. „Þetta er mjög óskiljanlegt fyrir okkur, enda erum við að ljúka námi og við viljum hafa skýrar reglur um hvernig námsárangur okkar verður metinn,“ segir Ronja. „Við höfum mestar áhyggjur af því að ef við skiljum þetta ekki þá erum við hrædd um að menntaskólar skilji þetta ekki og bara að við vitum ekki hvernig okkur gengur. Við erum búin að fá svo fáar kynningar um þetta fyrr en bara núna.“ Útfærslan sé óskýr og tímaramminn sem ráðuneytið gefi til innleiðingar of knappur. Þá gagnrýnir

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 6:13:19 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗