Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast hærra

RÚV ·

Mikilvægt er að raddir fólks með þroskahömlun gleymist ekki í umræðunni segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Fólk með þroskahömlun geti tekið ákvarðanir um eigið líf og þau séu sérfræðingar í eigin málum. Þetta var á meðal þess sem kom fram í Speglinum á Rás 1. Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast þegar rætt er um hagsmuni þeirra segir formaður Átaks. Þau geti tekið ákvarðanir um eigin líf en þurfi oft stuðning og fræðslu til að taka þær. Í þættinum var rætt við þau Jónínu Rósu Hjartardóttur formann Átaks, Ingvar Þór Ásmundsson, meðstjórnanda og Sveinbjörn Eggertsson varaformann Þroskahjálpar. Tilefnið var umfjöllun í fréttaskýringaþættinum Þetta helst þar sem rætt var um sjálfsákvörðunarrétt fólks með þroskahömlun. Þar viðraði móðir ungs manns áhyggjur sínar af því að heilsu hans færi hrakandi og að starfsfólk gæti ekki brugðist við því það teldist nauðung. Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Alþingi hefur lögfest hefur það skýran rétt á að taka ákvarðanir um eigið líf. Stjórnvöldum ber skylda til að tryggja nauðsynlegan stuðning til að það sé hægt. Sveinbjörn segir að fræðsla sé mikilvæg og hún þurfi líka að berast til foreldra. Jónína tekur undir þetta og segir að systkini geti líka verið vandamál því þau eigi það til að skipta sér of mikið af. Réttindabarátta Átaks mikilvæg Átak tekur virkan þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun. Þau hitti reglulega fulltrúa stjórnvalda og veiti umsögn um mál sem tengist þeim. Jónína segir að félagsstarfið sé líka mikilvægt. Nauðsynlegt sé að skapa vettvang fyrir fólk með þroskahömlun til að hittast, meðal annars til að koma í veg fyrir þunglyndi. Það geri þau til dæmis með keilukvöldum, bingói og jafnvel hraðstefnumótum. Rætt var um bakslag í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun og 50 ára afmæli Þroskahjálpar í öðrum þætti Þetta helst.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 6:45:22 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗