Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Tveir Íslendingar keppa á HM í 25 m laug

RÚV ·

Ísland mun eiga tvo keppendur á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 m laug í byrjun desember. Þetta varð ljóst eftir að CUBE-móti Sundfélags Hafnarfjarðar lauk í gær. Fjórir Íslendingar náðu lágmarki á HM en tvö þeirra gefa ekki kost á sér til þátttöku. Birnir Freyr Hálfdánarson sem um helgina sló 23 ára gamalt Íslandsmet Arnar Arnarsonar í 200 m fjórsundi þegar hann synti á 1:57,57 mín. mun keppa á HM. Snorri Dagur Einarsson mun sömuleiðis keppa í 50 m bringusundi á HM, en hann hafði náð HM-lágmarkinu fyrir mót helgarinnar. Þá höfðu Einar Margeir Ágústsson og Snæfríður Sól Jórunnardóttir einnig þátttökurétt á HM, en gáfu hvorugt kost á sér til keppni. HM verður haldið í Beijing, höfuðborg Kína, hefst þriðjudaginn 1. desember og stendur yfir til sunnudagsins 6. desember.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 12:55:32 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗