Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju

RÚV ·

Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í kirkjunni og flutti Andrés Narfi Andrésson arkitekt hátíðarfyrirlestur um tilurð kirkjunnar í tengslum við vígsluhátíðina. Hann segir að fyrstu hugmyndir um hönnun kirkjunnar hafi komið fram í samkeppni árið 1929. Sett voru skilyrði í lýsingu hennar að hún yrði að vera í rómönskum stíl og drógu margir því þátttöku sína til baka. „Eftir sem áður eru þrír aðilar sem skila inn tillögu og það var síðan niðurstaða byggingarnefndar að engar af þessum þremur tillögum hefðu verið færar til útfærslu nánari útfærslu,“ segir Andrés. Ríkisstjórn Íslands tekur þá af skarið og ákveður að fela Guðjóni Samúelssyni að hanna kirkju hér og færir meðal annars rök fyrir því að það sé bara eiginlega enginn hæfur hönnuður á landinu sem geti tekið að sér svona stórt og erfitt verkefni. 40 ár eru í dag liðin frá vígslu Hallgrímskirkju. Formaður sóknarnefndarinnar segir kirkjuna aldrei hallmæla ferðamönnum þó að hefðbundið kirkjustarf hafi breyst vegna ágangs þeirra. Guðjón Samúelsson var húsameistari ríkisins frá 1920 fram til 1950. Hann teiknaði margar af þekktustu byggingum landsins, þar á meðal aðalbyggingu Háskóla Íslands, Hótel Borg, Þjóðleikhúsið og margar fleiri. Arkítektúr kirkjunnar var meðal annars sagður mannfjandsamlegur og að hún væri eins og útsýnisturn með tveimur skíðabrekkum. Framkvæmdir hófust 1945 og stóðu yfir í rúmlega fjörutíu ár. Fréttastofa ræddi við Magnús Brynjólfsson smið árið 1981, fimm árum áður en vígslan fór fram en hann eyddi meirihluta starfsævi sinnar í smíða kirkjuna. 40 ár eru í dag liðin frá vígslu Hallgrímskirkju. Formaður sóknarnefndarinnar segir kirkjuna aldrei hallmæla ferðamönnum þó að hefðbundið kirkjustarf hafi breyst vegna ágangs þeirra. Íslensk náttúra mikill innblástur Andrés segir að eitt helsta stílbragð Guðjóns á kirkjunni séu einmitt stuðlarnir á framhlið hennar og segir hann að Guðjón hafi o

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 9:52:38 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗