Mjög lítil áhætta fyrir íslenskan almenning
RÚV ·
Sóttvarnastofnun Evrópu telur mjög litla hættu á að ebóla greinist í einhverjum mæli í Evrópu í tengslum við faraldurinn sem geisar í Kongó, Kenía og Nígeríu. Þetta er niðurstaða nýs áhættumats stofnunarinnar sem birt var fyrir helgi. Eitt innflutt smit hefur greinst í Evrópu og þrír sjúklingar hafa verið fluttir þangað. Alls hafa 9.704 smitast í Kongó og 4.687 látist. Níu smit hafa greinst í Kenía og eitt í Nígeríu. Fyrr á árinu smituðust 20 í Úganda en faraldrinum þar var lýst lokið í ágúst. Faraldurinn hefur áfram mjög litla áhættu í för með sér fyrir íslenskan almenning og fólk í Evrópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu, samkvæmt mati Sóttvarnastofnunar Evrópu. Ekki hefur þótt ástæða til að hvetja til almennra ferðatakmarkana til svæða þar sem smit hafa greinst. Ekki þykir heldur ástæða til að skima ferðamenn við komuna til Evrópu. Sóttvarnalæknir ráðleggur fólki þó að ferðast ekki að nauðsynjalausu til svæða í Kongó þar sem ebólusmit eru í útbreiðslu.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 1:37:11 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com