Ætla að skrá Bláa lónið á markað
RÚV ·
Bláa lónið verður skráð á markað auk þess sem ráðist verður í almennt hlutafjárútboð. Þetta var samþykkt á hluthafafundi í dag. Stefnt er að því að þetta gerist í næsta mánuði. Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að skráning þess á aðalmarkað Nasdaq Iceland sé stór áfangi í sögu fyrirtækisins. Hún eigi að styrkja og breikka hluthafahópinn og gefa almenningi, fagfjárfestum og starfsfólki tækifæri til að eignast hlutabréf í einu þekktasta fyrirtæki landsins. Hluthafar samþykktu kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn Bláa lónsins og dótturfélaga þess sem fyrirtækið á 90% eða meira í. Um 700 starfsmenn fá að kaupa hlutabréf fyrir 1,5 milljónir á ári í fimm ár, samtals 7,5 milljónir.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 1:17:39 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com