Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Mikil vanþekking og jafnvel fordómar“ mæta fólki með ME-sjúkdóminn

RÚV ·

Formaður ME-félagsins á Íslandi segir nýja skýrslu landlæknis veita von. Það geti beinlínis verið hættulegt að meðhöndla sjúkdóminn rangt. Í nýrri skýrslu vinnuhóps sem var skipaður af landlækni í fyrra að beiðni heilbrigðisráðherra er meðal annars lagt til að ME verði skilgreindur sem alvarlegur krónískur taugasjúkdómur þar sem hefðbundin endurhæfing á ekki við. Vinnuhópnum var falið að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við einstaklinga sem glíma við sjúkdóma og heilkenni sem kennd eru við ME, POTS og langvinnt COVID-19. Þá bættust umhverfissjúkdómar við á meðan á vinnu hópsins stóð, en þar er til að mynda átt við veikindi af völdum myglu. Það var niðurstaða skýrslunnar að þörf væri á fræðslu innan heilbrigðisþjónustunnar um þessa sjúkdóma. Þá er einnig lagt til að fjármögnun rannsókna hérlendis og faglegur stuðningur við sjúklinga verði efld. Sjúklingar sem þjást af þessum sjúkdómum séu margir með gríðarlega sjúkdómsbyrði. Þrátt fyrir það sé þjónusta við þá í engu samræmi við það. Sjúkdómarnir geti verið mjög dýrir fyrir sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samfélagið, meðal annars vegna skertrar náms- og starfsgetu og brotthvarfs af vinnumarkaði eða skóla. Fólk bíði eftir endurhæfingu sem ME-sjúklingar Helga Edwardsdóttir formaður ME-félags Íslands segir mikilvægt að fólk sem þjáist af þessum sjúkdómum sé gripið snemma til að koma í veg fyrir að einkenni versni eða verði varanleg. Það er mikil vanþekking og jafnvel fordómar þar sem læknar eða heilbrigðisstarfsfólk halda að þetta sé bara allt í hausnum á fólki. Það sem er kannski vont er að hið opinbera heilbrigðiskerfi er að eyða gríðarlegum fjármunum í að senda þetta fólk í einhvers konar endurhæfingu í Hveragerði, á Reykjalundi eða eitthvað slíkt og þetta fólk er að koma það er að koma jafnvel verr út eftir þetta. Á meðan er annað fólk að bíða eftir að komast í endurhæfingu. Hún segir fólk jafnvel ranglega greint með þunglyndi, kulnun eða álíka. Þá sé fólk hvatt til að hreyfa sig meira eða annað sem geti b

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 1:57:52 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗