Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram

RÚV ·

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunartími hans rennur út í mars á næsta ári. Runólfur greindi sjálfur frá þessu í grein í fréttabréfi Landspítalans sem kom út í dag. „Forstjóratíð mín hefur nú staðið í tæp fimm ár og lýkur upphaflegum skipunartíma mínum 1. mars næstkomandi. Starfið er krefjandi en á sama tíma gefandi. Mikilvægir áfangar hafa náðst og unnið er hörðum höndum að mörgum áhugaverðum verkefnum. Fagmennska starfsfólks í þjónustu við sjúklinga og aukin afköst á því sviði eru mér sérstakt ánægjuefni,“ skrifar Runólfur, sem var skipaður forstjóri Landspítala 1. mars 2022. „Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Landspítala og mikla trú á þeim hæfileikum sem búa í mannauði stofnunarinnar. Ég hef því fallist á beiðni ráðherra um að sinna starfi forstjóra áfram og hefur skipun mín því verið framlengd til loka ársins 2029.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 4:20:02 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗