Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Facebook og Instagram rukka fyrirtæki fyrir fleiri en 2 hlekki

RÚV ·

Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, er byrjað að rukka fyrirtæki sem halda úti síðum fyrir að geta sett hlekki. Nýtt áskriftarmódel sem kallast Meta One var kynnt í lok september. Það setur hömlur á hversu mörgum hlekkjum fyrirtæki geta deilt á Facebook án þess að borga. Breytingarnar eiga að taka gildi um næstu mánaðamót og þær hafa helst áhrif á fólk og fyrirtæki sem hafa hingað til gengið að því vísu að geta birt hlekki og efni frítt á Facebook. Áfram verður hægt að greiða fyrir dreifingu Facebook- og Instagram-færsla. Töluverð óvissa í nýjum aðstæðum Fjölmiðlum hefur gengið illa að fá frekari upplýsingar en þær sem Meta hefur þegar gefið. Þær vörur sem bundnar eru í áskriftarmódelið eru Facebook, Instagram, WhatsApp og Meta AI-gervigreindarlausnir. Það kostar 2,99 dollara (um 374 kr.) á mánuði að kaupa aðgang að stöku appi. Áskriftarpakkar fyrir einstaklinga og einyrkja kosta á bilinu átta til 20 dollara (um 1.000 kr. til um 2.500 kr.) og áhrifavalda- og fyrirtækjaáskriftir kosta á bilinu 15 til 500 dollara (um 1.900 kr. til 62.571 kr.). Um leið hætta vörur á borð við merkingar um að aðgangurinn sé raunverulega þinn að vera fríar og falla inn í áskriftarpakkana. Áhrif breytinganna á íslenskan auglýsingamarkað eiga hreinlega eftir að koma í ljós, segir Cathrine Frederiksen sem er sérfræðingur í samfélagsmiðlum og efnisgerð hjá Digido. Hún starfar við að miðla efni íslenskra fyrirtækja á samfélagsmiðlum og hefur velt fyrir sér hvernig eigi að bregðast við áskriftarmódeli Meta. Svarar eftirspurn eftir betri verkfærum Cathrine segir að í aðra röndina sé Meta að svara eftirspurn markaðsfólks eftir betri birtingartólum og greiningargögnum. Hingað til hafa þeir sem starfa við Facebook-markaðssetningu reitt sig á verkfæri frá þriðja aðila til þess að birta og greina efni með skilvirkum hætti. Verðmiðinn á þessum áskriftum er hár og það er vegna áralangrar eftirspurnar eftir betri verkfærum. Cathrine segist þó hafa orðið fyrir von

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 9:01:54 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗