Meta leyfir sér að skrapa vefi notenda með nýjum skilmálum
RÚV ·
Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að safna og vista efni af vefjum sem tengdir eru fyrirtækjareikningum. Með því að hafa fyrirtækjareikning hjá Meta veita fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar samfélagsmiðlarisanum aðgang að efni á vefjum sínum. Þessir nýju notendaskilmálar gildi á miðlum Meta 30. október. Á sama tíma tekur nýtt áskriftarmódel Meta gildi – sem notendur síðna verða að kaupa sér til að geta dreift fleiri en tveimur hlekkjum frítt á mánuði. Fyrirtækjareikningarnir gera fyrirtækjum og opinberum persónum kleift að stýra Facebook-síðum, spjallþráðum í Messenger, Instagram-reikningum og WhatsApp-þráðum á einum stað. Líklegt er að öll stórtæk fyrirtæki á samfélagsmiðlum séu með fyrirtækjareikning. Eins og nýju skilmálarnir eru orðaðir þá getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti skrapað efni, safnað því og vista hjá sér frá vefsíðum fyrirtækja – þar með talið fjölmiðla – og notað til þess að þjálfa gervigreindartól. Vertu með eða hættu á Facebook Það eru óvenjulegar ráðstafanir að grafa þessar heimildir í nýjum notendaskilmálum, er haft eftir Matt Topic, bandarískum lögfræðingi og sérfræðingi í fjölmiðla- og höfundarétti . Höfundarréttarvarið efni nýtur verndar samkvæmt íslenskum höfundalögum um leið og það verður til. Svipaðar reglur gilda um hugverk víðast hvar í heiminum. Efni á borð við fréttir, ljósmyndir, kvikmyndir, myndlist, tónlist, ritverk, leikrit og jafnvel teikningar og uppdrættir njóta alla jafna höfundaréttar. Höfundar efnis njóta bæði fjárhagslegra réttinda og sæmdarréttar í íslenskum lögum . Vegna sæmdarréttarins þurfa allir sem birta höfundarverkið að eigna það höfundinum. Höfundurinn ræður því líka hvenær birting efnisins fer fram og getur bannað öðrum að nota efnið. Fjárhagslegu réttindin tryggja að höfundurinn fái greitt fyrir notkun verkanna. Talið er að Meta reyni að spara sér milljónir bandaríkjadala í höfundarréttargreiðslur með breytingu á skilmálunum. Meta tilkynnti notendum Meta Business
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 11:49:39 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com