Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Hvað tengir Sólstafi, Sólför, Led Zeppelin, Dimmu, Deep Purple, Rainbow og Metallica?

RÚV ·

Í Rokklandi vikunnar tengist þetta allt. Við byrjum á Sólstöfum í Led Zeppelin og Ísland. Hljómsveitin Sólför var svo að gefa út nýja útgáfu af Immigrant Song sem Robert Plant söngvari Led Zeppelin segir í þættinum að minni hann alltaf á Ísland. Ivan Mendez er söngvari í Sólförum en líka nýr söngvari Dimmu. Deep Purple og Rainbow tengjast og Joe Lynn Turner segir frá því þegar Ritchie Blackmore bauð honum að ganga til liðs við Rainbow. Við rifjum upp söguna á bak við Metallica plötuna Master of Puppets og samstarf sveitarinnar við danska upptökumanninn Flemming Rasmussen sem heldur fyrirlestur um það í Kringlubíói 5. nóvember. Það var plata með Rainbow sem varð til þess að Lars Ulrich hringdi í Flemming og spurði hvort hann væri til í að vinna með Metallica, sem þá var næstum óþekkt hljómsveit.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 4:42:22 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗