Rockstar-ævintýri Magna og Lúkasarmálið hafa vakið mesta athygli
RÚV ·
Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Í þáttunum rifja fréttakonurnar fyrrverandi, Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, upp áhugaverð fréttamál. „Það kemur oft dálítið á óvart hvaða mál eru vinsælust. Til dæmis var þátturinn um Rockstar-ævintýri Magna alveg ótrúlega vinsæll,“ segir Nadine þegar þær Þórhildur eru spurðar um vinsælustu þættina sem þær hafa gert í gegnum árin. „Eitt sem margir nefna við mig var þátturinn um Lúkasarmálið,“ bætir Þórhildur við. Nú hafa þær sett í loftið nýtt framhaldshlaðvarp sem heitir Önnur mál. Þar halda þær áfram að kryfja gömul fréttamál en með öðrum hætti en í Eftirmálum. Þær vinkonurnar mættu í spjall, meðmæli og spurningakeppni í Miðstöðinni og þú getur horft á það í spilaranum hér fyrir ofan.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 4:00:58 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com