Öld ímyndunaraflsins: Besta bók Bergs Ebba
RÚV ·
„Mér finnst hann hafa tekið rosalegt þroskastökk sem höfundur í millitíðinni,“ segir Sverrir Norland bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar um þau sjö ár sem liðu á milli útgáfu nýjustu bókar Bergs Ebba Benediktssonar og hans síðustu þar á undan. Í Öld ímyndunaraflsins fjallar Bergur Ebbi um gervigreindina og hvernig hún hefur áhrif á líf okkar allra. Fléttar inn í bókina persónulegri frásögn af missi „Hann er að reyna að gera það á ofboðslega manneskjulegan hátt af sjónarhóli okkar og reyna að staðsetja okkur í þessu öllu. Hann hefur leik með því að tala um einmanaleika. Ég held að mörg okkar finni fyrir miklum einmanaleika af því okkur finnst eins og það sé komið eitthvert nýtt afl sem er að kippa undan okkur fótunum svolítið í tilverunni,“ segir Sverrir. Bókin sé því ekki tæknileg frásögn um hvað gervigreind er. „Það sem hann gerir sem gerir þessa bók að hans bestu bók hingað til er að hann fléttar inn í þetta persónulegri frásögn af missi innan fjölskyldunnar og hvernig bróðir hans litaði sýn hans á heiminn.“ Höfundur hins óvænta Þorgeir Tryggvason segir Berg Ebba skoða stöðu mannsins andspænis breyttum heimi. Höfundurinn sé þó bjartsýnn á að ekkert sigri sköpunarmáttinn. Bergur Ebbi sé höfundur hins óvænta og að á næstum því hverri blaðsíðu sé eitthvað spennandi og óvænt að finna. „Hvert fer hann með okkur næst?“ spyr Þorgeir í umfjöllun sinni um Öld ímyndunaraflsins. Öld ímyndunaraflsins er ekki tæknileg frásögn um hvað gervigreind er heldur fjallar um tæknina á manneskjulegan hátt. Inn í umfjöllunarefnið fléttar höfundurinn persónulegri frásögn af missi og það gerir bókina að hans bestu að mati gagnrýnanda. Gagnrýnendur Kiljunnar ræddu um Öld ímyndunaraflsins, nýjustu bók Bergs Ebba Benediktssonar, í síðasta þætti. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 2:00:14 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com