Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
RÚV ·
Borgarbókasafninu hefur verið gert að skera niður um 85 milljónir króna. Borgarbókaverði var tilkynnt um aðhaldskröfuna í september og hún tilkynnti starfsfólki hana á starfsmannafundi í dag. Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður segist venjulega ekki tilkynna starfsfólki um aðhaldskröfu með þessum hætti en hún hafi verið óvenjustór og því hafi hún ákveðið að útskýra fyrir starfsfólki hvernig bókasafnið ætlaði að ná markmiðinu. „En við erum ekki óvön niðurskurði,“ segir Pálína. Hagræðingarkrafa nemur um 5% af fjárframlögum Borgarbókasafnsins sem eru um 1,6 milljarðar árlega. Pálína segir stærstan hluta fara í starfsmannakostnað, svo 400 milljónir í húsnæði, og þá sé lítið eftir. Til að uppfylla niðurskurðarkröfuna hefur Borgarbókasafnið fækkað stöðugildum um fimm. Þar af voru tvö stöðugildi deildarstjóra lögð niður. Ekki tímabært að tjá sig um frekari hagræðingaráform Meirihlutinn í menningarráði Reykjavíkurborgar hefur lagt til að ráðist verði í heildstæða greiningu á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafnsins. Meðal þess sem lagt er til að verði skoðað eru möguleikar á breyttu skipulagi, sameiningu rekstrareininga og aukinni samnýtingu. Afgreiðslu tillögunnar var frestað en hún vakti hörð viðbrögð. Pálína segir ekki tímabært að tjá sig um tillöguna.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 5:15:22 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com