Litlar efndir á háleitum markmiðum um verndun líffræðilegs fjölbreytileika
RÚV ·
Sáttmálinn um verndun líffræðilegs fjölbreytileika er einn þriggja meginsáttmála sem þjóðir heims komu sér saman um á Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro sumarið 1992. Hinir snúa annars vegar að aðgerðum til að hamla gegn loftslagsbreytingum og hlýnun jarðar, og hins vegar að vörnum gegn eyðimerkurmyndun. Óhætt er að segja að illa hafi gengið að ná þeim árangri sem að var stefnt. Háleit markmið Fyrir fjórum árum, á þrjátíu ára afmæli heimsráðstefnunnar í Ríó og fimmtándu COP-ráðstefnunni um líffræðilegan fjölbreytileika samþykktu nánast öll ríki heims nema Bandaríkin og Vatikanið að gyrða sig í brók og settu sér 23 háleit markmið á þremur sviðum: Að fækka ógnum við líffræðilegan fjölbreytileika - það er að segja dýra- og plöntutegundir, vistkerfi og svo framvegis, finna leiðir til að mæta þörfum mannfólksins án þess að spilla umhverfinu og svo að þróa tæki, tól og aðrar lausnir sem duga til að ná hinum markmiðunum. Öllum þessum markmiðum átti - og á - að ná fyrir árið 2030. Litlar efndir Þrjú af þessum 23 markmiðum vega sínu þyngst. Mikilvægast og metnaðarfyllst þeirra er markmiðið um að tryggja vernd - friðun - 30 prósenta af yfirborði jarðar, það er að segja nær þriðjungs allra líf- og vistkerfa heimsins, jafnt á landi sem í sjó. Í öðru lagi á að fella niður minnst 500 milljarða dala niðurgreiðslur til jarðeldsneytis framleiðslu og kolefnismengandi iðnaðar, og loks á að hreinsa, endurheimta, endurlífga 30 prósent af flatarmáli spilltra vistkerfa, á láði jafnt sem legi. Í stuttu máli sagt, þá hafa engin þessara 23 markmiða náðst og ekkert útlit er fyrir að þau náist fyrir 2030. Reyndar hafa fá eða engin loftslags- og umhverfismarkmið sem alþjóðasamfélagið hefur sett sér á og frá Ríó '92 náðst, en það er önnur saga. Áhyggjur af ástandinu áberandi meðal ráðstefnugesta Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er í Jerevan, höfuðborg Armeníu, þar sem sautjánda heimsráðstefnan um líffræðilegan fjölbreytileika er í fullu
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 6:38:20 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com