Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Netanyahu fyrirskipar útgöngubann á Vesturbakkanum

RÚV ·

Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað útgöngubann á Vesturbakkanum eftir ásakanir um að tveir Palestínumenn hafi sært fimm Ísraela þar í morgun. Ísraelsher segir í færslu á X að Palestínumennirnir tveir hafi verið drepnir. Samkvæmt palestínska fréttamiðlinum Wafa voru þeir ungir að árum. Netanyahu sagði herinn hafa komið í veg fyrir árás sem hefði valdið fleirum skaða. AFP-fréttaveitan hefur eftir fréttamanni sínum á Vesturbakkanum að hann hafi séð Palestínumennina með skammbyssu og sjálfvirkan riffil. Þingkosningar verða í Ísrael á þriðjudag. Netanyahu hefur frestað öllum kosningafundum Likud-flokksins í dag vegna árásarinnar. Ráðherra þjóðaröryggismála, Itamar Ben Gvir, hefur krafist þess að palestínsk stjórnvöld á Vesturbakkanum fari frá völdum vegna árásarinnar í morgun. Þá krefst hann þess að stjórnvöld verði afvopnuð. Engar sannanir hafa þó verið lagðar fram fyrir því að palestínsk stjórnvöld hafi komið nokkuð nærri árásinni í morgun. Aukin spenna hefur verið á Vesturbakkanum síðustu mánuði vegna árása landtökumanna á ólífubændur. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum Palestínu hafa 1.113 Palestínumenn verið drepnir á Vesturbakkanum síðan í október 2023. Samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum hafa 49 Ísraelar, hið minnsta, bæði almennir borgarar og hermenn, verið drepnir á Vesturbakkanum á sama tímabili.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 9:55:01 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗