Sluppu við refsingu þrátt fyrir kynferðislega áreitni gegn börnum
RÚV ·
Fangelsisdómar yfir tveimur mönnum sem brutu kynferðislega á börnum fyrndust áður en hægt var að kalla þá inn til afplánunar. Báðir voru þeir dæmdir fyrir kynferðislega áreitni og hlutu innan við tólf mánaða dóm hvor um sig. Þetta kemur fram á vef Vísis og byggir fréttin á svari Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra við fyrirspurn fjölmiðilsins. Annar dómurinn fyrndist 2021, hinn í ár. Dómarnir eru vegna brota sem flokkast sem önnur kynferðisleg áreitni. Slíkir dómar fyrnast á fimm árum. Í umsögn Fangelsismálastofnunar um fjárlagafrumvarp næsta árs kemur fram að 700 fangar bíði afplánunar. Þar segir einnig að ljóst sé að hluti þeirra fyrnist ef ekki fæst meira fjármagn til rekstrarins.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 8:21:37 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com